Barcelona er
æðisleg borg og þangað ætla ég mér að fara aftur 
Hér kemur stutt
ferðasaga:
Fimmtudagurinn 3.
nóv :Við lögðum af stað á fimmtudagsmorgun með lestinni til
Barcelona ( ég, Heiðdís, Tonje, Solfrid og Hanne) og tók ferðin 4 ½
tíma svo við vorum komnar til Barcelona um 14:00. Þá fórum við og
fundum Hostel Kabul en það var mjög vel staðsett alveg í miðbænum
rétt hjá Römblunni, það leit bara nokkuð vel út og vorum við í
herbergi ásamt 3 strákum, það var mjög snyrtilegt þrátt fyrir að
herbergin voru soldið lítil kannski, varla pláss til að snúa sér
við en það var allt í lagi, kojan sem ég svaf í var allavega betri
en rúmið mitt hérna heima í Alicante. En svo allavega var bara kíkt
út og búðirnar vour þefaðar upp
Hanne hafði einu sinni áður
komið til Barcelona og vissi því hvar aðal verslunargatan var sem
kom sér mjög vel fyrir okkur. Eftir að við vorum búinar að skoða
hálfa verslunargötuna og búnar að sjoppa helling þá vorum við
orðnar frekar þreyttar og gerðum lítið merkilegt um kvöldið nema
rölta um og sonna.
Föstudagurinn 4.
nóv: Vaknað var snemma til að geta komist sem fyrst út að versla og
skoða hinn helminginn af verslunargötunni og vísa kortin fengu að
finna fyrir því þennan föstudagin fram á kvöld, þá var farið fínt
út að borða og svo fórum við í partý til norskra vina hennar
Solfrid þar var mikið stuð og nóg að drykkjum í boði, hittum við
þar mikið að skemmtilegu og leiðinlegu fólki hitt t.d. einn
Mexicana sem vildi endilega vita allt um sögu og uppruna Íslands og
vildi ólmur vita hvaðan víkingarnir væru upprunalega komnir frá, ég
sem sannur víkingur fræddi þennan unga frekar leiðinlega
Mexicana um alla íslandsöguna frá A-Ö þar sem hann var svo
svakalega áhugasamur um Ísland
En svo var líka hann Svanur
í partýinu og það var nú mikil gleði að hitta íslending í Barcelona
og tala íslensku við einhvern annan en hana Heiðdísi mína, svo urðu
sumir drukknari en aðrir þetta kvöld og komu ekki heim fyrr en
undir morgun en ég fór nú bara snemma heim á Hostle að sofa enda
uppgefin eftir langan verslunardag 
Laugardagurinn 5.
nóv: Sumir voru meira þynnri en aðrir og áttu því soldið þreyttan
dag
, en allavega þetta var túrisadagurinn mikli vorum við í
útsýnisferð með svona tveggja hæða strætó og þá skoðuðum við marga
fallegustu staði Barcelona borgar eins og Sagrada Famílli, Park
Gúell, F.C. Barcelona. Svo var verslað pínu meira, borðað, leti,
rölt og farið að sofa snemma
Sunnudagurinn 6.
nóv: Vaknað snemma og tékkað út af Hosteli, klárað að túristast og
skoðuðum Plaza de Espana, Poble Espanyol, Anella Olompica og það
var alveg rosalega gaman og ofsalega fallegt útsýni yfir alla
borgina og bara frábært. Svo var verslað pínu meira þar sem
verslanirnar voru okkur til mikillar ánægju opnar líka á
sunnudeginum þar sem er svo stutt í jól ( vanalega allt lokað á
sunnudögum), borðað og farið í lestina heim kl. 18:00
Semsagt frábær
ferð hápunktur haustsins, fallegasta borg sem ég hef komið til
ennþá allavega, drakk mikið af Starbucks sem ég smakkaði í fyrsta
skipti og líkaði rosalega vel
, gátum talað ensku við flest alla
þarna sem er tilbreyting frá Alicante, fullt að vitleysis myndum og
fallegum myndum tekið verða hugsanlega birtar síðar ef tími gefst
til, fullkomin stelpuhelgarverslunartúristaferð 
Helstu gallar:
Barcelona er soldið dýr borg allavega töluvert dýrari en
Alicante…..en miklu ódýrari en Ísland svo það er kannski ekki svo
mikill galli. Svo var miklu kaldara í Barcelona en Alicante og varð
okkur studum soldið kalt……en mér fannst það eiginlega bara kosý að
fá að upplifa smá haust og anda að mér köldu lofti…….svo það var
eiginlega heldur ekki galli = engnir gallar við Barcelona.
Held að ég láti
þetta duga, er örugglega að gleyma alveg fullt en ég held að fólk
nenni ekki að lesa ef þetta er mikið lengra
Bless bless
Nei annars eitt
enn, í dag flytja inn tveir aðrir strákar í sama gluggalausa
herbergið og Jonathan og David voru í og erum við pínu forvitnar að
sjá hvernig og hvaðan þeir eru og hversu lengi þeir mun endast í
þessu herbergi því í raun er táfýlulyktin ekki ennþá farin úr því.
Annars nennum við eiginlega ekkert að fá fleiri inn fínt eins og
þetta er núna rólegt og gott og við förum að vera svo busy að læra
að við nennum eiginlega ekkert að kynnast nýjum sambýlingum.