|
|
26.04.2006 20:01:19 / hlövey
.......já ég þoli bara ekki að vera veik gerist sem betur fer
ekki mjög oft, en þegar ég verð veik þá verð ég alltaf veik á
mjög svo óheppilegum tímum. Síðast þegar ég varð veik var það t.d.
á 23. afmælisdagin minn fékk þessa líka hrikalegu ælupest að engin
þorði að koma tala við mig og kyssa mig til hamingju með
dagin það var sko ömurlegasti afmælisdagur sem ég hef
átt.
Svo í nótt vakanði ég og fann að heilsan var ekki alveg eins og
hún átti að vera og ekki hafði hún skánað þegar ég vaknaði og
ætlaði í vinnuna svo ég er búin að liggja heima í allan dag án þess
að geta sofnað neitt né borðað og ég er bara alls ekki að fíla
þetta, fór reyndar og náði mér í tvær myndir svo ég
myndi lifa dagin af Elizabethtown sem er alveg hreint fínast
mynd og ekki skemmir það nú fyrir að hann Orlando Bloom leikur
í heinni og hann er nú sko ekki ómyndarlegur
strákurinn. svo var ein gömul með rómantíska ástarsagan
Possession með Gwyneth Paltrow og fleirum og það var
einnig hin fallegasta saga Þetta er sú afþreying sem
styttir manni helst stundirnar í veikindum. En allavega þá
hef ég engan tíma fyrir veikindi núna, ég er
nefnilega eins og flestir mínir nánust vita að fara klára BSc
ritgerðina mína um helgina því það eru aðeins fáir dagar í lokaskil
........eða þau eru 8. maí næstkomandi og því er þessi tímasetning
alveg með eindæmum slæm fyrir mig En ég er búin að byrgja mig
upp að allavega vítamínum, hálstöflum, verkjatöflum og öðru slíku
svo nú dugir ekkert annað en að vera duglegur að dópa sig upp á
nokkra klukkustunda fresti.
Ákvað að taka út jólaþemað sem hefur verið ríkandi hér á síðunni
frá því um jól þegar ég hætti að blogga.....en það eru ennþá alltaf
örfáar hræður sem virðast kíkja inn á síðuna mína ennþá.......og
þar sem mér leiddist nú svo hrikalega núna ákvað ég að skella bara
inn einni færslu.......ekki hafa miklar væntingar um að þær verði
miklu fleiri....en hver veit nema bloggandin komi yfir mig .....það
kemur bara í ljós 
Jæja best að halda áfram og vera eins og drusla og láta sér líða
illa 
»
02.01.2006 00:12:28 / hlövey
Góðir lesendur nær og fjær ég óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs
og takk fyrir það gamla og öll þau gömlu.
Ég er búin að hafa það svakalega fínt hérna heima á Egilsstöðum
um jólin búin að liggja í leiti, lesa mikið, borða allt of mikið af
góðum mat, leika mér og svo líka fara á 2 böll og hitta vini
og vandamenn, og það er bara búið að vera svaka fínt. Ótrúlegt að
vika sé liðin og jólin bara búin og komið nýtt ár og allt. En nú
tekur nýtt ár við og það sem ég hafði hugsað mér að gera svona
næstu 4 mánuðina er að klára að skrifa BSc ritgerðina mína í
Viðskiptafræðinni í HR svo ég útskrifist þá næsta júní....það
verður nú ekki leiðinlegt, svo er ég einnig að fara vinna
með skrifunum svo það verður væntanlega nóg að gera hjá mér á
næstunni. Og svo er nú bara ekki mikið meira planað en það á þessu
ári svo það verður bara að koma í ljós hvað gerist eftir að Þórey
litla verður orðin viðskiptafræðingur með meiru.
En annars ætlaði ég líka að tilkynna það að ég hafði hugsað mér
að hætta að skrifa á þessa ágætu bloggsíðu, þar sem tilgangurinn
með henni var aðalega að leyfa fólkinu heima að fylgjast með mér
meðan ég dvaldi út á Spáni fyrir jól......svo ef þið kæruð lesendur
viljið endilega frétta af mér þá verðið þið bara að senda mér mail
eða hringja í mig og þá mun ég væntanlega geta sagt ykkur hvað er
að gerast í lífi mínu hverju sinni 
Takk fyrir að vera duglega að lesa síðuna mína hafið það öll sem
allra best
Þórey hefur kvatt blogg heiminn....að sinni að minsta kosti

Bless bless
»
24.12.2005 14:30:00 / hlövey
Hó hó hó
Nú eru bara þrír og hálfur tími í jólin og ég er ennþá
bara í náttfötunum og í náttslopnum mínum Ég var vakin rétt
fyrir tíu í morgun og var mér þá tilkynnt að það væri komin
dagur.....það var hann Tristan Elí frændi minn sem sér til þess að
allir fari á fætur á skikkanlegum tíma hér á bæ. Svo er ég bara
búin að vera horfa á teiknimyndir með honum og Agli mág í morgun og
sétja pakka undir jólatré og sonna allskonar bara. Já og svo má
nátturulega ekki gleyma súkkulaðimúsinni sem var borðuð hér í
hádeiginu eins og síðustu ár....súkkulaðimús ala Egill alveg
ossalega gott 
Svo er lyktin úr eldhúsinu alveg svakalega góð mamma og Hrefna
greinilega alveg að gera góða hluti með undibúining fyrir
appríkósugljáðu jólaöndina 
En nú held ég verði að fara klippa hann pabba minn fyrir jólin
svo allir verði fínir og sætir í kvöld.
Er hér með tilkynningu að ég sveikst undan að skrifa jólakort í
ár þar sem ég er ný lent frá Spánarlandi og gaf mér því miður ekki
tíma til að skrifa jólakort en ég mun bæta ykkur það upp á næsta
ári og lofa ossalega skemmtilegum kortum þá 
Svo ég segi baraGleðileg
Jól allir saman nær og fjær. Vona ég
að þið hafið öll yndisleg jól í faðmi fjölskyldunar, njótið þess að
borða góðan mat í kvöld og opna allar fallegu gjafirnar

Sjáumst svo sem flest á jólaballi á Egilsstöðum á annan í jólum
hress og kát
Jólakveðja
Þórey litla
»
20.12.2005 21:30:25 / hlövey
Halló allir,
Ég er komin til landsins og er komin alla leið til Egilsstaða
meiri að segja, lenti þar í morgun og skellti mér á jólaball í
Hallormsstaðaskóla þar í dag með systu og Tristan Elí svaka
stemming 
Svo eru bara 3 dagar til jóla núna, og ætla ég að reyna að gera
eitthvað jólalegt þangað til eins og kannski að baka eitthvað gott
fyrir jólin, pakka inn jólapökkum og eitthvað solleiðis.
Ætlaði bara láta vita af mér
bæjó
Þórey
»
14.12.2005 10:21:20 / hlövey
Eitt próf búid, ein kynning eftir í dag og eitt próf á
morgun, tetta er alveg ad hafast. Tat eru bara 3 dagar í heimferd
tat er gaman.
Og tetta er allt ad frétta núna
bless bless 
Komin aftur, búin með kynninguna í Marketing Communications og
hún gékk líka svona þrusuvel 
Breytti yfir í svona smá jólaþema þar sem ég er komin í svo
mikið jólaskap svo svona lítur síðan mín út fram yfir jól 
Annars er Heiðdís, Tonje og Solfrid allar búnar í skólanum í dag
svo það verður partý hjá þeim í kvöld og ég ætla að kíkja þangað og
vera bara stillt í kvöld, því ég á seinast prófið eftir á morgun en
það er létt, er búin að ná áfanganum og þetta er bara svona smá
munnlegt próf ekkert til að hafa áhyggjur af. Svo annað kvöld er
kveðjupartý heima hjá okkur seinasta partýið okkar hér í Alicante
og erum við búnara að bjóða fullt að fólki í litlu íbúiðina okkar
og ef ég þekki okkur vinkonurnar réttverður þetta alveg þrusu kvöld
á morgun ......hlakka mikið til Eina sem verður ekki skemmtilegt
er að kveðja alla vinina mig hlakkar sko alls ekki til þess, á ekki
svo gott með kveðjustundir og svo er maður búin að eignast svo
mikið að vinum hérna sem maður sér kannski aldrei aftur og það
finnst mér mjög sorglegt 
En nú ætla ég að lesa smá fyrir prófið á morgun svo ég géti
farið í partý í kvöld
Heyrumst
Þórey
»
10.12.2005 14:51:05 / hlövey
Halló,
Stutt blogg í dag bara láta rétt vita af mér, ég er bara á fullu
í próflestri tessa dagana fyrsta prófid er á thridjudagin, svo er
ég med fyrirlestur í einum áfanga á midvikudagin og svo seinasta
prófid á fimmdugain og thá er ég búin í skólanum vei vei. Svo that
er ssemsagt ekkert merkilegta ad frétta aaf mér tessa dagana eftir
viku akkúrat verd ég vaentanlega stödd á Stansted flugvelli ad bída
eftir fluginu mínu heim vei vei vei alveg ad koma heim og eftir 2
vikur verd ég heima í Bjarkarhlíd 2 ad leggja á bord fyrir
jólamatin og horfa á jólateiknamyndir og bída eftir ad klukkan
verdi sex tví thá koma jólin 
Bless bless hlakka til ad sjá ykkur öll eftir VIKU
»
05.12.2005 21:51:36 / hlövey
Hola, Úff tetta er búin ad vera langur dagur, erum búin ad sitja
frá 11 í morgun til 22 í kvöld heima hjá Tonje og Solfrid og vinna
ad lokaverkefni í Marketing Communication. Thurfum ad skila ritgerd
og halda fyrirlestur í naestu viku, sem vid thurfum ad skila núna á
midvikudagin. Og tetta tekur svo langan tíma ad fara yfir allan
textan og búa til fyrirlesturinn, vorum ad vonast til ad tetta
mundi klárast í dag en tví midur tókst tat ekki svo vid thurfum ad
hittast klukkan 10 í fyrramálid aftur  En annars er engin skóli
hjá mér tessa vikuna, tat er frídagur á Spáni á morgun og á
fimmtudagin og svo er ekki tími á midvikudagin og ég er aldrei í
skólanum á mánud og föstudögum sem tídir ad tat er semsagt engin
skóli tessa vikuna, sem er ágaett thá getum vid klárad allt sem
tarf ad klára og byrja ad lesa undir próf tví ég fer víst í tvö
próf í naestu viku ádur en ég kem heim. Helgin var voda skemmtileg,
fór út á föstudagskvöldid sem var ekki plandid reyndar og svo var
Danska jólabodid á laugardagskvöldid og tat var aedi paedi  Dorte
var búin ad skreyta jóla jóla heima hjá sér, svo voru jólalög og
alveg fullt, fullt af frábaerum mat og svo var líka voda
skemmtilegur pakkaleikur, og líka var hrísgrjónajólagrautur med
möndlu og möndlugjöf, svo tetta var voda mikid jóla jóla. Og alveg
ossalega skemmtilegt, og madur komst í rosa jólaskap. En annars eru
bara naestum 12 dagar tangad til ég kem heim, og tat er nú alveg
óendanlega skrítid bara 12 dagar, vá hvad tímin lídur hratt  En
ég er soldid sibbin núna eftir langan dag vid laerdómin, aetla fara
koma mér í háttin. Góda nótt allir saman
»
29.11.2005 14:12:17 / hlövey
Halló allir saman!
Saija og Elísa finnsku stelpurnar fóru heim til Finnlands
á síðasta föstudag og það var nú soldið skrýtið að kveðja þær búnar
að búa með þeim í 3 mánuði og svo kannski sjáum við þær bara aldrei
aftur. Það flutti nýr strákur inn í íbúðina í gær, svíja strákur
hann heitir Andres. Svo strákar eru orðnir í meirihluta í íbúðinni
okkar, enn eitt herbergi laust það flytur örugglega einhver inn í
það bráðlega.
Annars fór ég í party á
föstudagin til Jonathans og Davids gömlu meðlegjenda okkar og var
þar mikið stuð hættulega bollan var í boði eins og oft áður og varð
folk náttla mjög skrautlegt eftir að drekka þann drykk
J
Svo var ekki mikið annars
gert, lærði náttla soldið, var að reyna að versla seinustu
jólagjafirnar og ég held að það sé bara alveg að takast bara einn
vandræðargemsi eftir sem ég veit ekki alveg hvað ég á að gefa en ég
finn út úr því 
Fyrsti sunnudagur í
aðventu var á sunnudagin og ég gerði bara ekkert aðventulegt en ég
sá samt jólasveinin um helgina, hann var eitthvað að rölta hérna í
götunni minni með fullan poka að gjöfum, en hann stoppaði ekki til
að gefa mér pakka og ég var ossalega leið L
ég sem er búin að vera svo stillt stelpa.
Um næstu helgi eða næsta
laugardag eru Dorte og Camila danskar vinkonur okkar búnar að bjóða
til jólamáltíðar og er ég alveg ótrúlega spent yfir því vona að það
verði margt gott í boði J
Annars ætlaði ég líka að
þakka bestu systu í heimi, Agli og Tristan Elí fyrir pakkan í
síðustu viku hann var ossalega sætur og skemmtilegur
og við stöllur
táruðumst næstum bara þegar við horfðum á hann í tölvunni
J
og pipakökurnar vöru lika góðar þrátt fyrir að þetta hafi
meira verið svona pipakökumynsla þegar ég fékk þær en það var
allt í lagi J
Annars er bara kalt þessa dagana svo ég gét ekkert gert ykkur
afbrigðisöm þarna heima á Íslandinu og sagt að hér sé sól og 25
stiga hiti ennþá.
Þangað til næst
Bless
»
22.11.2005 14:12:41 / hlövey
Góðan
dagin.
Fyrsta skipti á
Spáni þetta haustið þá leiddis mér alveg hrikalega í gær ég vissi
bara ekkert hvernig ég átti að haga mér, eins og aðra mánudaga þá
var ég ekki í skólanum. En stelpan vaknaði nú samt rúmlega níu og
settist fyrir framan tölvuna til að fara læra, veit ekki hvað ég
var að spá, var að reyna skrifa um Alcampo súpermarkaðin en það er
semsagt eitt stærsta verkefnið mitt þessa önnina í Marketing
Communications, þurfum að taka búðina alveg í gegn og athuga hvort
hún sé nú í lagi og rétt sé farið að öllu þar á bæ, ekki seinna
vænna en að byrja á því verkefni. En semsagt skrifandin var ekki
yfir mér í gær eins og oft áður og gékk þetta því ekki sem best, og
mér leiddist svo hrikalega mikið, og svo var líka ein heima og ég
var bara alveg að deyja úr leiðindum, þessa á milli sem ég gat ekki
skrifað lagði ég kapal í tölvunni minni alveg eins og geðsjúklingur
sem á sér EKKERT líf og svo ákvað ég líka að fara út í búð og kaupa
klósettpappír til að gera eitthvað annað en að sitja inni fyrir
framan tölvuna, ótrúlega skemmtilegt. En eitthvað tókst mér þó að
skrifa þennan dag sem er gott, svo bjargaði Heiðdís mér þegar hún
kom heim um sex og dróg mig út úr húsinu og við fórum og fengum
okkur að borða og eitthvað, þetta bjargaði deginum. Á svona dögum
þegar manni leiðist svona mikið þá langar manni bara heim til sín
og ég var bara eitthvað að telja dagana þangað til ég kem heim og
sonna, og semsagt á næsta miðvikudag hefst formleg niðurtalning en
ég og við stöllurnar keyptum okkur nefnilega súkkulaði jóladagtal
og ætlum að byrja á vitlausum enda á því núna á miðvikudagin en þá
eru bara 24 dagar þangað til ég kem heim. 
Um næstu helgi er
víst fyrsti sunnudagur í aðventu sem þýðir að það eru alveg að koma
jól líka, þegar aðventan byrjar heima hjá mér á Íslandinu er ég vön
að setja upp nokkrar jólaseríjur og setja upp aðventuljós svona til
að koma mér í jólagírin, en hérna held ég að ég geri það ekki, því
ég á engin jólaljós hérna og það fynnst mér ossalega leiðinlegt því
þá kemst ég kannski ekki í jólaskap. En líka um þessa helgi (fyrstu
helgina í aðventu) þá er ég vön að fara á litlu jólin í Arnartanga
31 270 Mosfellsbæ til hennar Sigrúnar frænku minnar og er hún vön
að hrista fram úr erminni marga góða og ljúfenga rétti og hafa
svona hálfgert jólakvöld til að koma fólki í jólaskap, og er þetta
yfirleitt mitt helsta tilhlökkunar efni í nóvembermánuði heima á
Íslandinu þegar ég er vön að vera á fullu í skólanum að læra undir
próf. En núna mun ég líka missa af þessu þar sem ég er á
Spáni……hvað er ég eiginlega að gera á Spáni missi af öllu
jóladótinu. En nei, nei það er annars fínt á Spáni svona oftast
sko….nema þegar mér leiðist eins og í gær. 
Annars var helgin
bara fín, djamm, verslað, lært, fótboltaleikur og videokvöld.
Bless bless hlakka
til að sjá ykkur öll eftir 25 daga 
Þórey litla
skrifar frá Spánarlandinu.
»
16.11.2005 11:07:35 / hlövey
Lífið í Plaza
Ruperto Chapí gengur sinn vana gang. Helgin í Grananda var
rosalega fín, og vorum við nú eiginlega bara túristar þessa
helgi og vorum allan dagin að skoða og skoða. Í Granada var
engin snjór en þar var mjög kalt fór niður í 5 gráður á nóttunni
og var um 10 -13 gráður á dagin, svo okkur var svona frekar
kalt. Svo vorum við á þessu annars ágæta Hosteli nema hvað að
þar voru engnir ofnar svo við vorum að frjósa úr kulda þar inni
og þurftum að sofa í annsi mikið af fötum ekki gott mál, trúi
bara ekki að Spánverjar kyndi húsin sín ekki upp yfir kaldasta
tíma ársins. En svo var þetta Hostel semsagt næstum í miðbænum
og stóð við eitthvað torg svo það voru rosaleg læti þarna þangað
til snemma um morguninn, og ég svaf lítið vegna kulda og hávaða,
svo mér leið eiginlega eins og ég væri stödd í tjaldi vegna þess
ég var svo mikið klædd, og ég væri einhverstaðar á útihátíð
vegna þess það voru svo mikil læti 
Annars var þetta
allt fínt, Grananda ofsalega falleg borg og mæli ég með að fólk
kíki þar við ef það á leið fram hjá næst þegar þið farið til Spánar

Annars man ég
eiginlega engar fréttir núna, núna tekur lærdómurinn við og ég er
hætt að ferðast allavega, vegna þess að nú verð ég að fara sinna
skólanum og svo hef ég heldur eiginelga ekki efni á því að skoða
meir núna 
Við fórum í Keilu
í gærkvöldi og það var gaman og ég tapaði ekki sem var líka gott
því það stefndi í það í byrjun.
Svo er partý hér á
bæ á morgun vegna þess að finnsku stlepurnar okkar eru að fara
flytja út eftir rétt rúma viku og þær fara sama föstudag og þær
klára skólan eða 25. nóvember, svo þær eru að fara halda
kveðjupartý.
Ekkert meira í
fréttum
Þórey
»
11.11.2005 11:22:22 / hlövey
Þegar rignir á Spáni þá rignir sko
Spáni. Í gær var sem sagt rigning og það var bara eiginlega
alveg steypiregn, þurftum að bíða í svona hálftíma eftir
strætónum og á meðan við biðum eftir honum skemmtu allir
bílstjórarnir á götum Alicanteborgar sér við það að keyra alveg
á fullri ferð fram hjá okkur svo það myndi nú örugglega
skvettast vel yfir okkur vatn. Svo þegar við loksins komumst í
skólan þá voru allstaðar svo stórir pollar að við alveg
rennblotnuðum í fæturnar og ég þurfti að vera í skólanum í 6
klst eftir það og allan tíman var ég gjörsamlega að frjósa úr
kulda sem var ekki gott því ég er með pínu kvef eftir seinustu
helgi, en ég bara borða töfra sólhattin frá Íslandi í öll mál og
hann er gjörsamlega bjarga lífi mínu hér núna. En allavega líka
þegar rignir á Spáni þá virkar skólin okkar eiginlega bara alls
ekki neitt. Þá virka tölvurnar ekki, þá blikka ljósin í sífellu
og það fynda er svo að húsin hérna eru greinilega ekki byggð
fyrir svona mikla rigningu því að í skólabyggingunni minni
allavega þá lak á víð og dreif rigninginn niður úr loftinu á
ganginum, útum allt voru stórir pollar af rigningarvatni sko
inni, ekki mjög gott. Og eiginlega var okkur sagt á einum
kynningarfundinum hérna í haust að þegar rignir á Spáni eigum
við eiginlega bara alls ekki að fara neitt, þá þurfum við ekki
að mæta í skólan því engin mætir o.s.frv. en við erum svo of
samviskusamir nemendur að við náttla óðum bara í pollunum til að
komast í tíma og sungum Mér finnst rigningin góð, eins og sönnum
íslending ber að gera þegar þeir lenda í miklu
rigningarverði. Og það ringdi næstum lát laust allan dagin
langt fram á kvöld og líka soldi í morgun en er komin sól 
Já þetta var
semsagt sagan um rigninguna á Spáni.......og hún er
sönn
Nú á eftir
nánartiltekið klukkan 16:00 verður lagt af stað í Road Trip til
Granada með Heiðdísi litlu, Hanne frá Danmörku og Stellu frá
Hollandi. Ferðin á að taka svona 3 ½ klst ef við villumst ekkert og
lendum ekki í neinum ævintýrum og vona ég að við villumst
nú ekki mikið en það er nú allt í lagi að lenda í smá ævintýri. En
semsagt er það ein fallegasta borg Spánar að mér er sagt og mun ég
dæma það um helgina og segja ykkur eftir helgi hvort það sé rétt.
En annars heyrði ég í gær að það hafi snjóað þar í fyrradag eða
eitthvað þessi borg er sko upp í fjöllum held ég, en það væri nú
gaman að sjá smá snjó og þá er reyndar kannski soldið kalt líka en
það er nú allt í lagi því ég keypti mér húfu og trefil í Barcelona
um síðustu helgi svo ég er núna fær í flestan sjó ( segir máltækið
það ekki annars pabbi?????? ) eða kannski bara fær í flestan snjó
En annars samt kom það mér soldið á
óvart að það snjóaði í Madrid, Barcelona og Granada semsagt í
fyrradag og þetta er ekki í fyrsta skipti sem snjóar á Spáni í
vetur, en ég semsagt hélt að það snjóaði nú bara alls ekkert á
Spáni svona yfir höfuð en ég hafði greinilega ekki rétt fyrir mér.
Annars er þetta nú væntanlega ekki mikill snjór eins og ég er vön
heima á Egilsstöðum væntanlega bara svona smá föl en já kannski
bara kemur það í ljós þarf ekki að blaðra meira um það. Ég gét
kannski bara sagt ykkur það líka eftir helgi hvernig nákvæmlega
snjórin er í Granada.
Þetta var sagan um
Granada og snjóin......skemmtilegt ekki satt 
Nýju strákarnir í
gluggalausaherberginu eru semsagt tveir danskir peyjar og eru Marco
23 ára og Stefan 21 árs. Við sjáum þá nú ekki mikið þar sem þeir
eru að vinna hérna hjá einhverju húsgagnasetjasamanfyrirtæki og
þeir eru semsagt með einhvern argentískan boss sem lætur þá vinna
10 tíma á dag án þess að fá heidigismatarhlé og svo fá þeir heilar
3 evrur á tíman hjá honum sem eru alveg heilar 219 ísl kr, svo það
er nokkuð ljóst að þeir verða moldríkir í þessari vinnu.......eða
ekki kannski. Annars held ég ad tetta séu fínir strákar.
Jæja best að fara pakka
kuldagallanum niður heyrumst eftir helgi
Adios
P.S. systa ég er orðin
annsi forvitin að bíða eftir þessum súper dúper fyndna pakka sem
hefur tekið 3 vikur að verða tilbúin , uhuhuh mig langar í pakkan
minn systa 
Bless
»
08.11.2005 13:22:09 / hlövey
Barcelona er
æðisleg borg og þangað ætla ég mér að fara aftur 
Hér kemur stutt
ferðasaga:
Fimmtudagurinn 3.
nóv :Við lögðum af stað á fimmtudagsmorgun með lestinni til
Barcelona ( ég, Heiðdís, Tonje, Solfrid og Hanne) og tók ferðin 4 ½
tíma svo við vorum komnar til Barcelona um 14:00. Þá fórum við og
fundum Hostel Kabul en það var mjög vel staðsett alveg í miðbænum
rétt hjá Römblunni, það leit bara nokkuð vel út og vorum við í
herbergi ásamt 3 strákum, það var mjög snyrtilegt þrátt fyrir að
herbergin voru soldið lítil kannski, varla pláss til að snúa sér
við en það var allt í lagi, kojan sem ég svaf í var allavega betri
en rúmið mitt hérna heima í Alicante. En svo allavega var bara kíkt
út og búðirnar vour þefaðar upp Hanne hafði einu sinni áður
komið til Barcelona og vissi því hvar aðal verslunargatan var sem
kom sér mjög vel fyrir okkur. Eftir að við vorum búinar að skoða
hálfa verslunargötuna og búnar að sjoppa helling þá vorum við
orðnar frekar þreyttar og gerðum lítið merkilegt um kvöldið nema
rölta um og sonna.
Föstudagurinn 4.
nóv: Vaknað var snemma til að geta komist sem fyrst út að versla og
skoða hinn helminginn af verslunargötunni og vísa kortin fengu að
finna fyrir því þennan föstudagin fram á kvöld, þá var farið fínt
út að borða og svo fórum við í partý til norskra vina hennar
Solfrid þar var mikið stuð og nóg að drykkjum í boði, hittum við
þar mikið að skemmtilegu og leiðinlegu fólki hitt t.d. einn
Mexicana sem vildi endilega vita allt um sögu og uppruna Íslands og
vildi ólmur vita hvaðan víkingarnir væru upprunalega komnir frá, ég
sem sannur víkingur fræddi þennan unga frekar leiðinlega
Mexicana um alla íslandsöguna frá A-Ö þar sem hann var svo
svakalega áhugasamur um Ísland En svo var líka hann Svanur
í partýinu og það var nú mikil gleði að hitta íslending í Barcelona
og tala íslensku við einhvern annan en hana Heiðdísi mína, svo urðu
sumir drukknari en aðrir þetta kvöld og komu ekki heim fyrr en
undir morgun en ég fór nú bara snemma heim á Hostle að sofa enda
uppgefin eftir langan verslunardag 
Laugardagurinn 5.
nóv: Sumir voru meira þynnri en aðrir og áttu því soldið þreyttan
dag , en allavega þetta var túrisadagurinn mikli vorum við í
útsýnisferð með svona tveggja hæða strætó og þá skoðuðum við marga
fallegustu staði Barcelona borgar eins og Sagrada Famílli, Park
Gúell, F.C. Barcelona. Svo var verslað pínu meira, borðað, leti,
rölt og farið að sofa snemma
Sunnudagurinn 6.
nóv: Vaknað snemma og tékkað út af Hosteli, klárað að túristast og
skoðuðum Plaza de Espana, Poble Espanyol, Anella Olompica og það
var alveg rosalega gaman og ofsalega fallegt útsýni yfir alla
borgina og bara frábært. Svo var verslað pínu meira þar sem
verslanirnar voru okkur til mikillar ánægju opnar líka á
sunnudeginum þar sem er svo stutt í jól ( vanalega allt lokað á
sunnudögum), borðað og farið í lestina heim kl. 18:00
Semsagt frábær
ferð hápunktur haustsins, fallegasta borg sem ég hef komið til
ennþá allavega, drakk mikið af Starbucks sem ég smakkaði í fyrsta
skipti og líkaði rosalega vel , gátum talað ensku við flest alla
þarna sem er tilbreyting frá Alicante, fullt að vitleysis myndum og
fallegum myndum tekið verða hugsanlega birtar síðar ef tími gefst
til, fullkomin stelpuhelgarverslunartúristaferð 
Helstu gallar:
Barcelona er soldið dýr borg allavega töluvert dýrari en
Alicante…..en miklu ódýrari en Ísland svo það er kannski ekki svo
mikill galli. Svo var miklu kaldara í Barcelona en Alicante og varð
okkur studum soldið kalt……en mér fannst það eiginlega bara kosý að
fá að upplifa smá haust og anda að mér köldu lofti…….svo það var
eiginlega heldur ekki galli = engnir gallar við Barcelona.
Held að ég láti
þetta duga, er örugglega að gleyma alveg fullt en ég held að fólk
nenni ekki að lesa ef þetta er mikið lengra
Bless bless
Nei annars eitt
enn, í dag flytja inn tveir aðrir strákar í sama gluggalausa
herbergið og Jonathan og David voru í og erum við pínu forvitnar að
sjá hvernig og hvaðan þeir eru og hversu lengi þeir mun endast í
þessu herbergi því í raun er táfýlulyktin ekki ennþá farin úr því.
Annars nennum við eiginlega ekkert að fá fleiri inn fínt eins og
þetta er núna rólegt og gott og við förum að vera svo busy að læra
að við nennum eiginlega ekkert að kynnast nýjum sambýlingum.
»
02.11.2005 10:19:55 / hlövey
Góðan dagin. Ótrúlegt en satt þá er komin nóvember mánuður sem
þýðir það að það styttist óðum í það að ég komi heim aftur eða
eftir aðeins einn og hálfan mánuð ótrúlegt hvað tímin flýgur hratt
þessa dagana.
Síðasta vika er búin að vera nokkuð góð bara þetta er fyrsti
skóladagurinn minn í þessari viku og sá eini svo ég hafði gott og
langt helgarfrí, um helgina fór ég ásamt vinum til Eltche en það er
bær hérna ekki langt frá, gaman svona annað slagið að sjá eitthvað
annað en Alicante og var þessi bær bara nokkuð hreinn og fínn annað
en hægt er að segja um Alicante. Á mánudagin var svo Halloween og
þá klæddi fólk sig upp á fór út að skemmta sér á mánudagskvöldið en
ótrúlegt en satt þá kíkti ég bara rétt í bæin og fór svo snemma
heim. Í gær var svo frídagur svo þá var eins og það væri sunnudagur
allt lokað og ég var alveg einstaklega löt og gerði eiginlega
ekkert annað í gær en að horfa á Joey eftir að ég vaknaði
einhvertíman seint um síðir 
En svo á morgun í fyrramálið er það Barcelona og hlakka ég
rosalega til að fara að skoða þá fallegu borg og jafnvel versla
aðeins. Svo erum við stöllurnar ásamt Hanne og Stellu frá Hollandi
einnig búnar að plana Road trip til Granada helgina þar á eftir eða
11 til 13 nóvember. En hún Stella kom nefnilega keyrandi hingað frá
Hollandi í haust á bílnum sínum svo við ætlum nú bara skella okkur
keyrandi til Granada ódýrara en að taka rútu og svo verður það líka
örugglega soldið ævintýri, ætlum svo að gista á Hosteli og skoða
Granada, en það er víst borg sem maður getur ekki sleppt því að
skoða því hún er svo falleg.
En tölvan mín er að verða batteríislaus svo ég læt þetta duga í
bili, heyrumst eftir Barcelona 
Adios
»
27.10.2005 10:07:25 / hlövey
Ég verd nú ad segja ad ég vard fyrir svolitlum vonbrigdum med
vidbrögdin eftir sídustu faerslu hjá mér, tat langar greinilega
engum ad koma í heimsókn til mín hingad til Spánar og tat saknar
mín greinilega engin heima, og vegna tess ad allir virdast vera
búnir ad gleyma mér heima nema systa,Thóra Elísabet (alla vega eru
taer einu sem commenta) og mamma og pabbi held ég séu ekki
búin ad gleyma mér thau eru allavega dugleg ad hringja, en thá hef
ég ákvedid ad lengja dvöl mína hér á Spáni um óákvedin tíma aetla
ekki ad koma heim fyrr en bara einhvertíman árid 2008, tat hlídur
ad vera í lagi ykkar vegna tar sem engin saknar mín heima

Annars fluttu svía strákarnir okkar út í gaer og er mikil sorg
sem ríkir á heimilinu núna, eitthvad svo lítil laeti og svona og
svo var náttla David adal raestitaeknirinn og verdur hans sárt
saknad og erum vid jafnvel ad hugsa um ad legja hann eins og
tvisvar í viku til ad trífa fyrir okkur en their semsagt nenntu
ekki lengur ad búa í saman í gluggalausa herberginu lengur tar sem
teir aetla ad vera á Spáni fram á vor og eru their núna komnir í
einhverja lúxus íbúd. En vid erum ad fara í afmaelis partý til
Jonathans á morgun í nýju íbúdina og tat verdur gaman Svo höfum
vid heyrt af thví ad tat sé einhver strákur ad flytja inn til okkar
í lok nóvember tegar finnsku stelpurnar fara, en kannski flytur
hann inn fyrr fyrst tat er laust herbergi nú tegar, en vid nennum
eiginlega ekkert ad fá einhvern nýjan strák viljum bara Jonathan og
David.
Svo er gaman ad segja frá tví ad ég held ad spánverjar séu svona
í tann vegin ad komast í jólaskap. Tví í gaer sá ég ad tat er
byrjad ad skreita adal verslunargötuna hérna í Alicante med svona
jólaljósum var reyndar ekki búid ad kveikja á teim en tat verdur
kannski gert brádum. Svo fór ég líka í Mercadona matvörubúdina ádan
og tar er búid ad stilla upp jólakonfektinu og meiri ad segja er
haegt ad kaupa súkkuladidagatal ég er ekki frá tví ad ég muni
fjárfesta í einu slíku tegar naer dregur jólum til ad koma mér í
jólagírin, en ég er nefnilega mjög mikil jólastelpa og hlakkar
alveg hrikalega mikid til jólanna 
Svo er Siggi hennar Heiddisar ad koma í heimsókn til hennar í
kvöld og verdur hann í eina viku hérna (heppin hún ad fá
heimsókn).
Já svo ég held ad tetta sé bara ordid gott
Bless bless
Thórey litla á Spáni sem allir eru búinir ad gleyma 
»
24.10.2005 09:35:44 / hlövey
Góðan dagin.
Var að enn að bæta við fleiri myndum og í þetta sinn eru það
ekki djamm myndir svo þið getið séð það að við erum nú ekki alltaf
að djamma hérna, gerum ýmislegt annað stundum allavega.
Annars er semsagt mánudagsmorgun núna, og ég er ennþá í
helgarfríi þar sem ég er ekki í neinum tímum á mánudögum, en
ég var semsagt alveg ótrúlega dugleg í morgun að vakna og
fór með Heiðdísi í skólan klukkan 10:00, þar sem ég þurfti að
vesenast ýmislegt hérna upp í skóla og nú er ég að bíða eftir því
að hún sé búin í tíma svo við getum verið samferða heim.
Annars bíð ég bara spennt eftir næstu viku, það verður stutt
vika í skólanum þar sem það er frí á næsta þriðjudag einhver
frídagur á Spáni og svo fórum við til Barcelona á fimmtudagin og
tilhlökkun er í hámarki þessa dagana.
Svo er ég að hugsa um að auglýsa eftir einhverjum til að koma í
heimsókn til mín þar sem mig vantar nauðsynlega að geta sent soldið
að drasli heim þá væri mjög hentugt að fá einhvern í heimsókn sem
gæti tekið dót fyrir mig er nefnilega farin að kvíða því að
þurfa kannski að borga margar milljónir í yfirvigt þegar ég kem
heim um jólin, og þessar milljónir á ég nefnielga ekki.....sem er
verra. Alveg fáránlegt hvað er leyfilegt að taka með sér fá kíló
þegar maður er að koma frá útlöndum aðeins 20 kg og það er jafn
mikið og má taka með sér innanlands, og oftast eru töskurnar tómar
svona 5-6 kg svo þá á maður bara 15 - 14 kg eftir og þegar maður er
nú búin að búa í útlöndum í nokkra mánuði þá er bara ekki nokkur
séns á því að maður hafi ekki meira en 15 kg. Alveg óþólandi. Svo
ef einhver hefur áhuga að koma til mín þá bara látið mig vita og
vinsamlegast ekki koma með of mikin farangur með ykkur því ég þarf
að nota plássið ykkar til að senda heim, takk fyrir ég bíð
spennt eftir viðbrögðum núna.
Annars er bara sól og blíða ennþá, geggjað veður á ströndinni í
gær örugglega 25 stiga hiti, svo ég vorkenni ykkur pínulítið þarna
heima í kuldanum og snjónum 
En svo má fólk líka vera duglegra við að kvitta í gestabókina og
einnig þætti mér vænt um að vinir mínir sendu mér bréf annað slagið
svo ég gæti nú fylgst með slúðrinu heima hehe.
Bless í bili
Þórey á Spáni
»
Síður: 1 2 3
|
|